Tuesday, May 09, 2006



Þessi karl þarna ... providing the tan.

Thursday, May 04, 2006

Vegna fjölda áskorana hefur G.Örninn ákveðið að rita um sjálfan sig í þriðju persónu að nýju. Dagurinn byrjaði rólega hjá G.Erninum. Hann vaknaði snemma og fékk sér hollan og góðan verð, morgunverð. Eftir næringarnámið læddist undarleg tilfinning aftan í huga G.Arnarins. Hann hafði nokkrum sinnum áður fundið þessa tilfinningu en það var fyrir mörgum árum. Tilfinningin var kvíði en það er tilfinning sem G.Örninn kannast ekki vel við enda er hann stór, kröftugur, feitur og frekur eins og góðum Örnum sæmir. Kvíðinn var til kominn vegna þolprófs sem G.Örninn átti að mæta í. En kvíðinn var óþarfti enda stóð G.Örninn sig eins og hetja í prófinu og útkoman var gríðarlega góð þoltala þrátt fyrir stærð, þyngd og ummál.

Því næst hélt G.Örninn ásamt K. Jóni og Sif á veitingastaðinn Red Chili þar sem snæddur var hollur og góður verður, hamborgari. En skyndilega fann G.Örninn eitthvað laumast aftan að sér. Hann sneri sér snögglega við og horfði á hinn þögla laumupoka í augu beint. En óttinn reyndist óþarfur því þetta var aðeins þjónustumaðurinn að inna eftir athugasemdum á matinn góða.

En hinn raunverulegi ógnvaldur átti eftir að láta á sér kræla.

Fylgist með.

Monday, May 01, 2006

Síðustu daga hef ég gerst glæpamaður. Já, á meðan ég man, persóna Clive Owen í myndinni Inside Man (ísl. Innherjinn) Dalton Russell er án efa svalasti glæpamaður sem ég hef fengið að fylgjast með. Og hef ég fengið að fylgjast með þeim allmörgum. En glæpamaðurinn ég rændi heilum fjórum geislaplötum á stafrænu .mp3 formi af alnetinu án þess að samviskan léti nokkuð á sér kræla. Það, að samviskan hafi ekki látið á sér kræla, veldur mér áhyggjum því margt lítið gerir eitt stórt. Glæpahneigðin mun því að öllum líkindum aukast og fyrr en varir sjáið þið mig á forsíðu helgarblaðsins DV í járnum fyrir stórfelld skattsvik og meiðyrði. En þeir diskar sem ég rændi voru eftirfarandi:

1. Antics með Interpol. Ágætur diskur en mér finnst fyrri diskurinn þó mun betri. Lagið Evil er það eina sem stendur upp úr eftir fyrstu hlustun.

2. 3121 með Prince. Ðörtí-vonn-tventí-vonn stóðst ekki væntingar.

3. At War with the Mystics með The Flaming Lips. Jájá, þessi hljómaði vel við fyrstu hlustun og mun án efa verða betri.

4. Everything All the Time með Band of Horses. Fínt, svo sem.

Ég er orðinn svo óskaplega 'cool' með því að blogga svona um indie-tónlist og svona. Finnst ykkur ekki?

Friday, April 28, 2006

Vegna fjölda áskorana hef ákveðið að birta nöfn þeirra sem munu 'joina' mig til Japan í sumar. Ég fékk þennan lista á stafrænu blaðaskjali og á honum eru margir feykigóðir einstaklingar.

Þeir-sem-eru-á-leiðinni-til-Japan-en-ekki-þú!-namedrop. Haha!

Angela Zirknitzer - Austurríki
Trine Davidsen Holm - Danmörk
Teemu Nieminen - Finnland
Joon Nieminen - Finnland
Ingeborg Klapwijk - Holland
Agata Invernizzi - Ítalía
Dmitriy Trofimov - Úkraína
Simona Niculescu - Rúmenía
Cristian Tudose - Rúmenía
Duygu Evren - Tyrkland
Tamar Gat - Ísrael

...og ég veit þið trúið þessu ekki en...

Andrei Boris Jeltsin - Rússland

Thursday, April 27, 2006

Margar áskoranir hafa borist. G.Örninn hættir að tala um sig í þriðju persónu enda er það hálf asnalegt (sbr. Byssan). Lenti á tali við rauðhærða manneskju í gær sem staðfesti það sem ég hef alltaf sagt; ég er ekki rauðhærður. Heitar deilur hafa átt sér stað um hárlit minn en nú loksins er þetta komið á hreint. Margar, en þó aðallega ein, manneskja hafa sagt mig rauðhærðan og segja að ég sé í afneytun því mér finnist rauður hárlitur ekki 'töff'. Vitlausara gæti það nú varla verið. Ef ég væri rauðhærður myndi ég viðurkenna það fúslega en ég er það bara ekki. Eða hvað?

Tuesday, April 25, 2006

Hann er stór, hann er mikill, hann er feitur og hann er frekur. G.Örninn er mættur í sína aðra færslu í þessu hreiðri, arnarhreiðri. Þó engin sé vísunin í AH (Ei - Heidj) á nokkurn hátt. Margt hefur á daga G.Arnarins drifið. Sem dæmi má nefna að G.Örninn uppgötvaði eigin þyngd sína í fyrradag. Heil 95 kg sem verður að teljast of mikið. G.Örninn a.k.a. Gunnar Esteban dreif sig því á alnetið því það má með sanni segja að örvænting hafi gripið um sig. Þessi síða hér sagði G.Erninum svo að BMI stuðull hans væri 27 komma eitthvað. En það þýðir að G.Örninn er í svokallaðri minni ofþyngd. Nú verður G.Örninn að gera eitthvað í málunum og taka sig virkilega á. Í ljósi þess ætlar G.Örninn að mæta í skólann með Nupo Létt næstu daga. Þyngdin skal niður um að minnsta kosti 10 kíló fyrir ágústmánuð en þá ætlar G.Örninn að skella sér til Tyrklands og hafa það gott. Þó má gera ráð fyrir því að G.Örninn missi nokkur kíló í júlí því þá mun hann lifa á hrísgrjónunum einum því þau eru, að því er virðist, það eina sem hægt er að leggja sér til munns í Japan.

Friday, April 21, 2006



G.Örninn er mættur aftur á svæðið tvíefldur og reiðubúinn að leggja sitt af mörkum við að bæta þennan heim. G.Örninn mun rita af ástríðu til skemmtan og umhugsunar. Hann mun segja frá einkahögum og láta þeim sem vilja allar upplýsingar í té. Spennið á ykkur beltin. G.Örninn er risinn úr öskustónni.