Síðustu daga hef ég gerst glæpamaður. Já, á meðan ég man, persóna Clive Owen í myndinni Inside Man (ísl. Innherjinn) Dalton Russell er án efa svalasti glæpamaður sem ég hef fengið að fylgjast með. Og hef ég fengið að fylgjast með þeim allmörgum. En glæpamaðurinn ég rændi heilum fjórum geislaplötum á stafrænu .mp3 formi af alnetinu án þess að samviskan léti nokkuð á sér kræla. Það, að samviskan hafi ekki látið á sér kræla, veldur mér áhyggjum því margt lítið gerir eitt stórt. Glæpahneigðin mun því að öllum líkindum aukast og fyrr en varir sjáið þið mig á forsíðu helgarblaðsins DV í járnum fyrir stórfelld skattsvik og meiðyrði. En þeir diskar sem ég rændi voru eftirfarandi:
1. Antics með Interpol. Ágætur diskur en mér finnst fyrri diskurinn þó mun betri. Lagið Evil er það eina sem stendur upp úr eftir fyrstu hlustun.
2. 3121 með Prince. Ðörtí-vonn-tventí-vonn stóðst ekki væntingar.
3. At War with the Mystics með The Flaming Lips. Jájá, þessi hljómaði vel við fyrstu hlustun og mun án efa verða betri.
4. Everything All the Time með Band of Horses. Fínt, svo sem.
Ég er orðinn svo óskaplega 'cool' með því að blogga svona um indie-tónlist og svona. Finnst ykkur ekki?

9 Comments:
nei
æi jújú þú ert ágætur, en enska sökkar
Ehömm...Prince hætti nú að vera indie um miðjan níunda áratuginn sko...
ég hef nú þegar sigað á þig flaming lips og band of horses og þeir eru frekar kreisí yfir því að einhver gaur með permanett sé að stela frá þeim músík.
nettur og þéttur pakki klárlega
mig langar að þú byrjir aftur að tala um þig í þriðjupersónu, þá var þetta blogg eins og nokkurs konar smásaga
Inside Man er svo geðveik, Tom og Philip munu bara rétt svo geta toppað hana.
Hefur þú hlustað á Yoshimi Battles the Pink Robots með The Flaming Lips? ÞAð er rosalega mikil indí-snilld sem þú ættir að stela
Very cool design! Useful information. Go on!
Former toyota models
Very cool design! Useful information. Go on! » » »
Post a Comment
<< Home